Í gær tókumst við Hava á við skemmtilegt verkefni. Hana langar að prjóna peysu úr íslenskum lopa handa pabba sínum sem býr í Íran og því fórum við tvær saman á stúfana að versla lopa. Ég fór með hana upp í Álafosskvos því þar er margt af flottu íslensku handverki. Þar vorum við í dágóðan tíma að skoða og benda hvor annari á hitt og þetta sem okkur fannst flott eða áhugavert. Handapat, svipbrigði og mu og me og gobbidí hljóð voru notuð til að gera sig skiljanlega. Svo tókst okkur að versla tvöfaldan plötulopa í peysuna og vonandi reynist magnið rétt en Hava veit ekki hvaða stærð hann notar svo þetta voru ágiskanir fram og til baka. Það kom mér á óvart hvað við gátum átt miklar samræður með okkar fátæklega orðaforða, ég kann kannski 20 orð á farsí og hún svipað a íslensku. Ég er virkilega stolt af okkur að takast þessa ferð á hendur. Þess vegna set ég mynd af þessum fallegu blómum hér inn.
Þá birtist hér loks næsti réttur. Ýmislegt hefur staðið í vegi fyrir því að ekki hefur náðst að setja þetta inn á síðuna okkar en nú tekst vonandi að setja inn á hana vikulega eða oftar. Hava er með fullt af hugmyndum og dætur hennar tvær eru jafn áhugasamar um matreiðsluna og eru alltaf með okkur í eldhúsinu. Þær hafa lært af mömmu sinni og verða án efa jafn miklir snilldarkokkar og hún. En gjörið svo vel og verði ykkur að góðu. Rétturinn sem Hava býður okkur upp á heitir Ashak og kemur frá Afghanistan. Hann er ekki flókin í eldamennsku en þarfnast undirbúnings. Svona rétt eldar fjölskyldan oft um helgar þegar allir eru samankomnir og allir taka þátt í matargerðinni og úr þessu getur orðið hin besta skemmtun. Ég á alveg örugglega eftir að plata fjölskyldu mína til að elda hann með mér. Ekki bara er þessi réttur ótrúlega bragðgóður heldur er líka gaman að dunda sér saman við undirbúninginn. Þessi réttur er ferðalag fyrir bragðlaukana og kemur skemmtilega á óvart. Hægt er að nota mismunandi hráefni í rauðu sósuna en hér notar Hava kartöflu. Líka er hægt að nota kjúkling eða hakk. Stundum er sósunni alveg sleppt og smjörklípa sett á heita púrrulaukshattana. Innihald hveitideig Laukur 1,5 bolli hveiti hvítlaukur 1 bolli vatn púrrulaukur salt kartafla tómatpaste salt pipar mynta jógúrt Byrja á að búa til deigið, fletja það út og skera til í ferhyrninga ca 5x5 cm. Geymum og snúum okkur að næsta skrefi. Kartöflur skornar niður í smáa teninga og laukurinn skorinn smátt niður. Allur púrrulaukurinn skorinn niður og Hava sker fyrst upp í hann og svo saxar hún hann niður smátt. Út í púrrulaukinn setjum við smá olíu ca teskeið, svona rétt svo laukurinn haldist saman, þetta kryddað til með salt og pipar. Nú tökum við deigferningana og röðum þeim á bökunarpappír. Um það bil matskeið af lauknum sett í miðjuna á hverri sneið. Brotið saman í tvennt og köntunum þrýst létt saman. Svo er bara að gera eins og sést á myndinni og reyna að ná sömu tækni og Hava notar. Hún setur deigið upp á vísifingurinn og beygir þetta saman. Svona lítur þetta út og bíður eftir að verða soðið, þetta minnir mig á hatta og því kalla ég þá púrrulaukshatta. Næst snúum við okkur að sósugerðinni. Laukurinn steiktur upp úr olíu þar til hann er orðin mjúkur og gullinbrúnn. Á meðann laukurinn brúnast er hvítlaukurinn raspaður og hrærður saman við jógúrtið. það bragðbætt með salti og sett til hliðar. Kartöflurnar settar út í laukinn og látið steikjast í smá stund. Tómatpúrran fer út í 1-2 matskeiðar eftir því hvað þú vilt hafa sósuna rauða. 1 -2 dsl vatn hellt út í og leyft að malla á lágum hita þar til kartöflur mjúkar. Á meðan það gerist sjóðum við púrrulaukshattana. Setjum vatn í pott og látum suðuna koma upp, teskeið af salti sett út í og hattarnir ofaní. Þetta er látið sjóða í stutta stund 2-3 mínútur. Jógúrt smurt á disk. Hattarnir settir upp á diskinn. Jógúrt eftir smekk hvers og eins og myntu stráð stráð yfir. Að lokum kemur rauða sósan. Hér býður Hava okkur upp á rétt sem er vinsæll víða um heim. Hann er gerður úr Bamía / Lady finger sem er meinhollt og er af blómaætt. Bamía er stútfullt af trefjum og C vítamíni. Þessi réttur er einfaldur og ræður hver og einn hvað hann vill hafa réttinn sterkan með því að pipra hann að vild í lokinn. INNIHALD Bamía sem búið er að skera toppinn af 4 velþroskaðir tómatar 1 laukur tómatpúrra salt pipar olía vatn Hava er með allar uppskriftir í kollinum en hve mikið magn á að fara í hvern rétt, það hefur hún í puttunum. Við þurfum því svolítið að áætla sjálf og prufa okkur áfram. Laukurinn skorinn í sneiðar og svo aftur í tvennt, sett í pott ásamt ríflega af olíu. Þetta látið malla þar til laukur orðinn mjúkur og gulbrúnn. Tómatarnir maukaðir með rifjárni eða töfrasprota og hellt í pottinn 2-300 ml vatn hellt rólega út í og ca teskeið af salti. Það vantar myndina þegar tómatpúrran er sett út í. Magnið ræðst svolítið af því hvað við viljum hafa réttinn rauðann. Hava notaði rúma matskeið. Bamían fer út í og piprað eftir smekk, hér fór rúmlega ein teskeið og varð rétturinn mildur Búið er að bæta ca 1,5 bolla af vatni út í, suðan er látin koma upp og þetta látið malla á milli hita í 15 mínútur. Ef bamína er soðin of lítið verður hún seig og bragðvond og það viljum við að sjálfsögðu forðast. Rétturinn var borinn fram með heimagerðri jógúrt og fingurbjargarbrauði. Ég kalla brauðið það því hún býr til hringina í brauðið með því að þrýsta fingurbjörg í deigið. Við eigum eftir að skrifa niður uppskriftina en það er númer 27 á síðunni Hava cuisine. Þar er líka að finna myndir af jógúrtgerðinni númer 9.
Því miður áttaði ég mig ekki á að taka mynd af því þegar við snæddum þetta ljúfmeti en það var á þrjá ólíka vegu. Hava ólst upp í Afganistan og þar tíðkast að nota brauðið eins og við notum gaffal og með ótrúlegri fimi beitti hún brauðinu fyrir sig. Dætur hennar eru aftur á móti aldar upp í Íran og þar er algengt að klípa af brauðinu bita, opna hann og fylla af matnum. Ekki ósvipað og við gerum við pítubrauð. Þriðja útgáfan var svo hnífur og gaffall sem ég notaði að vísu lítið því ég vildi spreyta mig á þeirra aðferðum. Við Hava vorum svo sammála um það að maturinn bragðast miklu betur þegar snætt er með guðsgöflunum. |