Lambahakk 500 gr
2 laukar
5 hvítlauksrif
salt og pipar
Hveitideig
hveiti ca 1.5 bolli
vatn ca bolli eða þar til deig er passlega blautt/þurrt, ekki klístrað
salt ca 1/2 tsk
Sósa
laukur, tómatpaste og vatn
Á farsí þýðir orðið "man" ég og orðið "to" þýðir þú, þessir réttur heitir því Ég og Þú ! Ég spurði þær mæðgur hvort einhver sérstök meining væri á bak við nafngiftina, hvort þetta væri kannski eldað ef maður vildi ná athygli einhvers sérstaks eða væri ástfangin osfr. En svo er ekki, engin sérstök meining á bakvið heitið. Það er bara ég vesturlandabúinn sem er rómantíkerinn. Innihald í fyllingu Lambahakk 500 gr 2 laukar 5 hvítlauksrif salt og pipar Hveitideig hveiti ca 1.5 bolli vatn ca bolli eða þar til deig er passlega blautt/þurrt, ekki klístrað salt ca 1/2 tsk Sósa laukur, tómatpaste og vatn Hér sjáum við hvernig Hava vinnur deigið og undirbýr fyrir fyllingu Steikið saman hakkið og 1.5 stk lauk og kryddið með salti og vel af pipar. Takið pönnuna af hitanum og setjið út í 1/2 stk ferskan niðurskorinn lauk og 5 hvítlauksrif sem eru annaðhvort smáttskorin,kramin eða rifin niður á rifjárni eins og Hava gerir. Þá er fyllingin tilbúin og næst er það smá föndur. Setið deigbitana á bökunarpappír og fyllinguna í skál og pott til að raða fíneríinu ofan í. Við notum hér gufusoðspotta. Ein matskeið af fyllingu sett á mitt deigið og brotið saman eins og á mynd, horn í horn og þrýst saman. Þá lítur þetta svona út, eins og lítill pakki. Næsta skref er eins og á mynd, taka pakkann og klemma saman horn í horn. Ég fékk að spreita mig á föndrinu og náði að búa til svona ...... fyllt fyrirbæri. Veit ekki hvað við eigum að kalla svona, bát kannski eða poka ? En allavega þegar ég stolt sýndi Hövu afrakstur minn fór hún að föndra blóm með matnum. Þetta fannst mér verulega óréttlátt af henni að sýna yfirburði sína svo ég föndraði bara gogg en það gat hún líka, þá hætti ég og hélt áfram að fylla ferningana. Á ekki roð í hana. Hér er þetta komið í pottinn á nokkrum hæðum og meðan það sýður ca 25 mínútur, skellum við okkur í rauðu sósuna. Fíntsaxaður laukur brúnaður í olíu þar til mjúkur, þá er tómatpaste sett út í og pipar ásamt skvettu af vatni og þetta látið malla. Þið ráðið litnum á sósunni með magningu af tómatpúrrunniþ Þetta er sama sósa og notað er með ASHAK, sem eru deig fyllt með púrrulauk og kartöflum. Fat eða diskur tekin og smurður með hvítlauksjógúrt, dúddunum raðað ofaná og jógúrt skvett yfir. Hér er búið að setja rauðu sósuna ofan á líka og strá myntu yfir. Gott er að setja ferskt kóriander yfir llíka en það var ekki til þennan dag hjá okkur. Ég snæddi þetta með því að skera hvern poka fyrir sig í tvennt og sá að dæturnar gerðu það líka. Hava aftur á móti sagði að maður ætti að borða hvern fyrir sig í einum munnbita, þá kæmi allt bragðið saman. Það sýndi að maturinn væri góður ef maður fyllti vel í munninn svo kinnarnar væru úttroðnar. Ég hélt hún væri að stríða mér en svo var ekki, þetta er siðurinn í Afganistan ! Mér fannst ekki leiðinlegt að prófa þetta og ég átti bágt með að koma matnum niður með troðfullan munninn,mér fannst þetta svo fyndið. Þegar við vorum að borða spurði ég hvar flottu blómin hennar Hövu væru, mig langaði að sjá hvernig þau komu út en fann þau hvergi á disknum. Þá kom í ljós að þau voru sko ekkert handa mér, nei nei hún hafði tekið þau frá til að senda mig með þau heim til mannsins míns ! Þetta fannst henni fyndið. En svona leit flotti diskurinn út sem ég var send með heim. Og ekki nóg með það, þá fékk eiginmaðurinn brauð frá henni sem enn var volg, svo nýbakað var það. 10 stig til Hövu frá honum þennan dag.
2 Comments
Hava gerir heimsins besta jógúrt, einfalt og ótrúlega bragðgott. Það er mikið notað með mat hjá henni, stundum hreint, stundum með hvítlauk og yfirleitt alltaf saltað. Ég segi einfalt en samt hægt að klúðra því, ég þurfti tvær tilraunir heima til að ná því og nú á ég alltaf hreint jógúrt í ísskápnum nammmmm.... Innihald 1 líter nýmjólk 3 mtsk grísk jógúrt Nýmjólkin sett pott og suða látin koma upp, hellt yfir í ílát sem hægt er að loka og kemst fyrir inn í ísskáp. Á myndinni hér fyrir ofan er búið að sjóða mjólkina og hella yfir í plastdall. Þegar mjólkin er orðin ilvolg, hvorki heit né köld þá setjum við 3 mtsk af jógúrt út í og hrærum saman við með gaffli. Hava notar eigin jógúrt sem hún á alltaf inn í ísskáp en ég notaði gríska jógúrt. Lok sett á dallinn og hann hafður í stofuhita í 5-6 klukkustundir. Hava á svo fínan poka sem hún saumaði sjálf og passar flott til að halda hita á mat en ég er ekki svona myndarleg í saumaskapnum og vafði ísdallinum sem ég notaði inn í handklæði og hafði upp á eldhúsborði. Þetta er svo sett inn í ísskáp að loknum 5-6 klukkustundunum. Hér sést stoltið mitt, mín eigin jógúrt svo silkimjúk og ljúffeng. Jógúrtið hjá Hövu er grófara en mér finnst
gott að hafa mjúka áferð og til þess að ná því þá er gríska jógúrtin hrærð saman við smá af volgri mjólkinni áður en hún er sett út í restina. Þennan rétt elduðu þær systurnar Zahra og Fereshte en Hava var eins og þjálfari á hliðarlínunni, gaf fyrirmæli og smakkaði matinn. Þær voru búnar að bjóða tveimur konum í mat, önnur kemur frá þýskalandi og hin Afganistan en báðar eru þær búsettar hérlendis. Það var því eldaður hellingur af Ghabili og slegið upp veislu á stofugólfinu, já gólfinu, það var ekki lagt á borð heldur gólf fyrir okkur eins og tíðkast hjá þeim. Þar sem Hava var ekki að elda gleymdi ég mér svolítið og skipulagið á myndatökunni ruglaðist. Því eru ekki myndir af öllu eins og vanalega. Þær systur elduðu líka hakkbollur í rauðri lauksósu en við setjum þá uppskrift inn seinna. Ghabili er réttur með lambakjöti sem er steikt og gufusoðið og hrísgrjón sem innihalda gulrætur og rúsínur. Hakkbollurnar snæðast líka með þessum hrísgrjónum og fengum við ferskt salat með. Smakkaðist allt saman mjög vel. INNIHALD Hrísgrjón ca bolli á mann 2-3 gulrætur skornar í strimla 1,5 bolli rúsínur 2 laukar lambakjöt frampartar eða súpukjöt salt og pipar kardimommukrydd og cummin Kjötið myndast nú ekki sérlega vel hérna, en við reyndum að stilla þessu upp á sem bestan máta. Mér finnst þetta líta svolítið út eins og þurrkuðu svínseyrun sem hundinum mínum finnst svo góð en ég get lofað ykkur því að þetta bragðast betur (hef reyndar aldrei smakkað hitt). Gulræturnar skornar niður í strimla og látið malla í olíu Laukurinn komin niðursneiddur í pottinn og steiktur í stutta stund eða þar til orðin fallega gulur. Þá er kjötið sett í pottinn og þetta steikt saman. Hrært reglulega í pottinum og þegar kjötið er byrjað að brúnast er það kryddað með salti og pipar og hálfu glasi af vatni bætt út í. Þessu leyft að malla saman. Eftir ca 15 mínútur er aftur bætt vatni í og aftur eftir aðrar 15 mínútur. Um að gera að krydda nóg og smakka sig áfram. Svona ætti kjötið að líta út, vel brúnað. Það er veitt upp úr pottinum og eftir situr laukurinn í krydduðu vatninu. Nú bætum við nægu vatni í pottinn til að sjóða hrísgrjónin. Suðan látin koma upp. Grjónin sett út í og látið sjóða þar til vatn er næstum farið. Þá tökum við rúsinurnar og gulræturnar og hellum í miðjan pottinn. Varlega er svo mokað yfir þær, kjötinu raðað eins og á myndinni og kryddað vel með pipar, kardimommum og cummin. Myndin sem er hér til hægri sýnir réttinn eins og hann lítur út eftir að búið er að gufusjóða hann. Þetta er gufusoðið í 2o mínútur, lokið sett á með efnisdulunni undir. Að því loknu er kjötið veitt upp úr og hrísgrjónin sett á fat með rúsínunum og gulrótunum ofan á. Hér sést þegar systurnar eru að leggja á gólf og svona leit veislan okkar út. Ég læt fylgja með mynd af rúllutertunni sem við gæddum okkur á eftir matinn því henni fylgir smá saga. Þannig er mál með vexti að systurnar báðu mig um að kenna sér að baka sem var meir en sjálfsagt þar sem ég er mikill kökugrís. Ég gaf þeim því kökubók Hagkaups og sagði þeim bara að velja það sem við ættum að baka saman og þetta var það sem þær báðu um. Þessi ofureinfalda rúlluterta sem var oft á borðum hér áður fyrr. Hún er til í svipaðri útgáfu í Íran en með rjóma í stað sultu. Nú býð ég spennt eftir því hvaða köku þær velja næst.
Í dag fáum við að smakka rétt frá Afghanistan. Hann er oft á borðum landsmanna þar og mikið eldaður um helgar þegar allir í fjölskyldunni geta komið saman og hjálpast að. Dætur Hövu voru þegar byrjaðar að undirbúa eldamennskuna þegar ég kom til þeirra mæðgna. Við Hava notuðum tækifærið og fengum okkur te og rifjuðum upp orðin sem við kenndum hvor annari kvöldið áður. Mjög gott þetta græna te frá Afghanistan með kardimommukryddi ofaní. En að eldamennskunni aftur, Bolami eru steiktar fylltar kökureða hálfmánar sem bornir eru fram með ferskri jógúrt. Innihald Fylling: Deig: 1 púrrulaukur 1 1/2 bolli hveiti 1 1/2 soðnar kaldar kartöflur 1 1/4 bolli vatn salt 1/2 tsk þurrger pipar salt á hnífsoddi vatn Olía til steikingar Á myndinni eru tveir niðurskornir púrrulaukar en það er of mikið svo einn nægir, þetta dugir í ca 20 fyllingar Byrjið á að hnoða saman deigið og láta hefast í ca 30 mínútur. Á meðan skerum við púrrulaukinn og fáum okkur te eða notum tímann í eitthvað annað mjög áríðandi eins og að fara á netið. Þegar deigið er tilbúið klípum við af því og mótum bollur, ekki hnoða þær of mikið. Það ættu að koma 20 kúlur úr deiginu. Svo er að búa til þunna köku úr hverri kúlu, Hava snýr og fletur á ógnarhraða svo úr verða ótrúlega mjúkar, þunnar og flottar kökur. Ef þið eruð með hjálparkokk þá er um að gera að láta hann í að rífa niður kartöflurnar og blanda saman við púrrulaukinn. Kartöflurnar eru kramdar saman við þannig að ekki verði stórir bitar í blöndunni. Piprað og saltað eftir smekk, ekki verra að piparinn rífi aðeins í. Skvetta af vatni hrært út í svo blandann verði aðeins blaut og líti út eins og á mynd. Fyllinguni dreift á annan helming hverrar köku, kartöflur marðar ef bitarnir eru of stórir. Kakan brotin saman og þrýst laust á kantana. Olía hituð á pönnu og hver kaka steikt í nokkrar sekúndur og svo snúið við og steikt hinum megin. Hér borgar sig að vera með áhöld sem auðveldlega getað gripið um kökurnar í sjóðheitri olíunni. Á meðan einn steikir getur annar brotið saman, skemmtileg samvinna. Svona voru handbrögðin við að fiska upp steikta kökuna og svona leit staflinn út, brakandi gott. Bolami komið á diskinn með slettu af jógúrt og ekkert eftir nema eiga góða stund saman yfir matnum.
Í dag, 6 mars fórum við Hava saman á kvöldstund sem samtökin W.O.M.A.N. á íslandi standa fyrir. Á heimasíðu þeirra womeniniceland.is má finna þessa skilgreiningu: "Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003. Hlutverk Samtakanna er að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum kvenna sem sest hafa að á Íslandi rödd. Markmið Samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins" Samtökin standa fyrir skemmtilegum matarhitting einu sinni á mánuði. Þetta kvöld voru það konur frá Jamaíka sem kynntu okkur matargerð sína og voru allir réttirnir hver öðrum girnilegri. Við Hava nýttum svo tímann og kenndum hvor annari nokkur ný orð. Gaman var að koma þarna og finna samkenndina og hve vel er tekið á móti nýjum konum. Hér erum við nýju vinkonurnar á þessari góðu kvöldstund.
Þessi réttur er vinsæll bæði í Afghanistan og Íran. Hann er ekki flókin en krefst undirbúnings og smá handavinnu. Þetta er kjöt og grænmeti sem er steikt og vafið inn í annaðhvort hvítkálsblöð eins og þeir gera í Afghanistan eða blöð af vínberjatrjám eins og gert er í Íran. Þau er nú ekki algengt hráefni hér á norðurhjara veraldar en hægt er að kaupa þau loftþéttum umbúðum í erlendum verslunum hér í Reykjavík. Blöðin þarf að skola áður en notuð eru. Innihald 250 gr lambahakk bolli hrísgrjón 1/2 bolli gular baunir (ekki maísbaunir) 1 laukur 1 hvítlauksrif steinselja hvítkál laufblöð af vínberjatré salt og pipar Hrísgrjónin og gulu baunirnar eru settar í pott og soðið þar til mjúkt. Á meðan skerum við niður laukinn, steinseljan skorin niður og hvítlaukur kramin eða raspaður á rifjárni. Hakk og laukur steikt saman á pönnu, kryddað til með salt og pipar hvítkálshöfuð sett út í sjóðandi vatn og 1-2 mínútur. Fært yfir á disk og flett í sundur, magnið fer eftir hvað búa á til marga vafninga Hér er búið að brúna hakkið og út í það fara soðin grjónin og baunirnar. Hrært saman og steinselju og hvítlauk bætt út í. Þetta er svo látið hitna saman í stutta stund. Þá er það handavinnan, laufblaðið er tekið og slétt vel úr því og stöngullinn brotinn frá. Passlegt er að setja eina matskeið af blöndunni á mitt blaðið, svo er að brjóta það saman og raða ofan í pottinn. Ég get sagt ykkur það að auðveldara er að nota hvítkálsblöðin og þetta getur verið töluvert dútl að ná þessu svona fallega eins og Hava gerði. Botninn á pottinum er svo hulinn vel með blöðum áður en raðað er ofan í hann. Vatn sett í pottinn og suða látin koma upp. Við vorum í tímaþröng og því sauð hún vatn í katlinum og hellti yfir, annars á þetta að vera tilbúið þegar suðan kemur upp. Þetta er svo fært varlega upp á disk og snætt með jógúrtsósu með eða án hvítlauks. Dætur Hövu eru mjög hrifnar af þessum rétt og vilja vínberjablöðin frekar en hin en bragðlaukar mínir vilja vínberin frekar en blöðin. Hvítkálsbögglarnir fengu aftur á móti samþykki. Skora á alla að prófa þennan rétt
Í gær tókumst við Hava á við skemmtilegt verkefni. Hana langar að prjóna peysu úr íslenskum lopa handa pabba sínum sem býr í Íran og því fórum við tvær saman á stúfana að versla lopa. Ég fór með hana upp í Álafosskvos því þar er margt af flottu íslensku handverki. Þar vorum við í dágóðan tíma að skoða og benda hvor annari á hitt og þetta sem okkur fannst flott eða áhugavert. Handapat, svipbrigði og mu og me og gobbidí hljóð voru notuð til að gera sig skiljanlega. Svo tókst okkur að versla tvöfaldan plötulopa í peysuna og vonandi reynist magnið rétt en Hava veit ekki hvaða stærð hann notar svo þetta voru ágiskanir fram og til baka. Það kom mér á óvart hvað við gátum átt miklar samræður með okkar fátæklega orðaforða, ég kann kannski 20 orð á farsí og hún svipað a íslensku. Ég er virkilega stolt af okkur að takast þessa ferð á hendur. Þess vegna set ég mynd af þessum fallegu blómum hér inn. Þá birtist hér loks næsti réttur. Ýmislegt hefur staðið í vegi fyrir því að ekki hefur náðst að setja þetta inn á síðuna okkar en nú tekst vonandi að setja inn á hana vikulega eða oftar. Hava er með fullt af hugmyndum og dætur hennar tvær eru jafn áhugasamar um matreiðsluna og eru alltaf með okkur í eldhúsinu. Þær hafa lært af mömmu sinni og verða án efa jafn miklir snilldarkokkar og hún. En gjörið svo vel og verði ykkur að góðu. Rétturinn sem Hava býður okkur upp á heitir Ashak og kemur frá Afghanistan. Hann er ekki flókin í eldamennsku en þarfnast undirbúnings. Svona rétt eldar fjölskyldan oft um helgar þegar allir eru samankomnir og allir taka þátt í matargerðinni og úr þessu getur orðið hin besta skemmtun. Ég á alveg örugglega eftir að plata fjölskyldu mína til að elda hann með mér. Ekki bara er þessi réttur ótrúlega bragðgóður heldur er líka gaman að dunda sér saman við undirbúninginn. Þessi réttur er ferðalag fyrir bragðlaukana og kemur skemmtilega á óvart. Hægt er að nota mismunandi hráefni í rauðu sósuna en hér notar Hava kartöflu. Líka er hægt að nota kjúkling eða hakk. Stundum er sósunni alveg sleppt og smjörklípa sett á heita púrrulaukshattana. Innihald hveitideig Laukur 1,5 bolli hveiti hvítlaukur 1 bolli vatn púrrulaukur salt kartafla tómatpaste salt pipar mynta jógúrt Byrja á að búa til deigið, fletja það út og skera til í ferhyrninga ca 5x5 cm. Geymum og snúum okkur að næsta skrefi. Kartöflur skornar niður í smáa teninga og laukurinn skorinn smátt niður. Allur púrrulaukurinn skorinn niður og Hava sker fyrst upp í hann og svo saxar hún hann niður smátt. Út í púrrulaukinn setjum við smá olíu ca teskeið, svona rétt svo laukurinn haldist saman, þetta kryddað til með salt og pipar. Nú tökum við deigferningana og röðum þeim á bökunarpappír. Um það bil matskeið af lauknum sett í miðjuna á hverri sneið. Brotið saman í tvennt og köntunum þrýst létt saman. Svo er bara að gera eins og sést á myndinni og reyna að ná sömu tækni og Hava notar. Hún setur deigið upp á vísifingurinn og beygir þetta saman. Svona lítur þetta út og bíður eftir að verða soðið, þetta minnir mig á hatta og því kalla ég þá púrrulaukshatta. Næst snúum við okkur að sósugerðinni. Laukurinn steiktur upp úr olíu þar til hann er orðin mjúkur og gullinbrúnn. Á meðann laukurinn brúnast er hvítlaukurinn raspaður og hrærður saman við jógúrtið. það bragðbætt með salti og sett til hliðar. Kartöflurnar settar út í laukinn og látið steikjast í smá stund. Tómatpúrran fer út í 1-2 matskeiðar eftir því hvað þú vilt hafa sósuna rauða. 1 -2 dsl vatn hellt út í og leyft að malla á lágum hita þar til kartöflur mjúkar. Á meðan það gerist sjóðum við púrrulaukshattana. Setjum vatn í pott og látum suðuna koma upp, teskeið af salti sett út í og hattarnir ofaní. Þetta er látið sjóða í stutta stund 2-3 mínútur. Jógúrt smurt á disk. Hattarnir settir upp á diskinn. Jógúrt eftir smekk hvers og eins og myntu stráð stráð yfir. Að lokum kemur rauða sósan. Hér býður Hava okkur upp á rétt sem er vinsæll víða um heim. Hann er gerður úr Bamía / Lady finger sem er meinhollt og er af blómaætt. Bamía er stútfullt af trefjum og C vítamíni. Þessi réttur er einfaldur og ræður hver og einn hvað hann vill hafa réttinn sterkan með því að pipra hann að vild í lokinn. INNIHALD Bamía sem búið er að skera toppinn af 4 velþroskaðir tómatar 1 laukur tómatpúrra salt pipar olía vatn Hava er með allar uppskriftir í kollinum en hve mikið magn á að fara í hvern rétt, það hefur hún í puttunum. Við þurfum því svolítið að áætla sjálf og prufa okkur áfram. Laukurinn skorinn í sneiðar og svo aftur í tvennt, sett í pott ásamt ríflega af olíu. Þetta látið malla þar til laukur orðinn mjúkur og gulbrúnn. Tómatarnir maukaðir með rifjárni eða töfrasprota og hellt í pottinn 2-300 ml vatn hellt rólega út í og ca teskeið af salti. Það vantar myndina þegar tómatpúrran er sett út í. Magnið ræðst svolítið af því hvað við viljum hafa réttinn rauðann. Hava notaði rúma matskeið. Bamían fer út í og piprað eftir smekk, hér fór rúmlega ein teskeið og varð rétturinn mildur Búið er að bæta ca 1,5 bolla af vatni út í, suðan er látin koma upp og þetta látið malla á milli hita í 15 mínútur. Ef bamína er soðin of lítið verður hún seig og bragðvond og það viljum við að sjálfsögðu forðast. Rétturinn var borinn fram með heimagerðri jógúrt og fingurbjargarbrauði. Ég kalla brauðið það því hún býr til hringina í brauðið með því að þrýsta fingurbjörg í deigið. Við eigum eftir að skrifa niður uppskriftina en það er númer 27 á síðunni Hava cuisine. Þar er líka að finna myndir af jógúrtgerðinni númer 9.
Því miður áttaði ég mig ekki á að taka mynd af því þegar við snæddum þetta ljúfmeti en það var á þrjá ólíka vegu. Hava ólst upp í Afganistan og þar tíðkast að nota brauðið eins og við notum gaffal og með ótrúlegri fimi beitti hún brauðinu fyrir sig. Dætur hennar eru aftur á móti aldar upp í Íran og þar er algengt að klípa af brauðinu bita, opna hann og fylla af matnum. Ekki ósvipað og við gerum við pítubrauð. Þriðja útgáfan var svo hnífur og gaffall sem ég notaði að vísu lítið því ég vildi spreyta mig á þeirra aðferðum. Við Hava vorum svo sammála um það að maturinn bragðast miklu betur þegar snætt er með guðsgöflunum. |