Í gær tókumst við Hava á við skemmtilegt verkefni. Hana langar að prjóna peysu úr íslenskum lopa handa pabba sínum sem býr í Íran og því fórum við tvær saman á stúfana að versla lopa. Ég fór með hana upp í Álafosskvos því þar er margt af flottu íslensku handverki. Þar vorum við í dágóðan tíma að skoða og benda hvor annari á hitt og þetta sem okkur fannst flott eða áhugavert. Handapat, svipbrigði og mu og me og gobbidí hljóð voru notuð til að gera sig skiljanlega. Svo tókst okkur að versla tvöfaldan plötulopa í peysuna og vonandi reynist magnið rétt en Hava veit ekki hvaða stærð hann notar svo þetta voru ágiskanir fram og til baka. Það kom mér á óvart hvað við gátum átt miklar samræður með okkar fátæklega orðaforða, ég kann kannski 20 orð á farsí og hún svipað a íslensku. Ég er virkilega stolt af okkur að takast þessa ferð á hendur. Þess vegna set ég mynd af þessum fallegu blómum hér inn.