Bamía sem búið er að skera toppinn af
4 velþroskaðir tómatar
1 laukur
tómatpúrra
salt
pipar
olía
vatn
Hava er með allar uppskriftir í kollinum en hve mikið magn á að fara í hvern rétt, það hefur hún í puttunum. Við þurfum því svolítið að áætla sjálf og prufa okkur áfram.
Því miður áttaði ég mig ekki á að taka mynd af því þegar við snæddum þetta ljúfmeti en það var á þrjá ólíka vegu. Hava ólst upp í Afganistan og þar tíðkast að nota brauðið eins og við notum gaffal og með ótrúlegri fimi beitti hún brauðinu fyrir sig. Dætur hennar eru aftur á móti aldar upp í Íran og þar er algengt að klípa af brauðinu bita, opna hann og fylla af matnum. Ekki ósvipað og við gerum við pítubrauð. Þriðja útgáfan var svo hnífur og gaffall sem ég notaði að vísu lítið því ég vildi spreyta mig á þeirra aðferðum. Við Hava vorum svo sammála um það að maturinn bragðast miklu betur þegar snætt er með guðsgöflunum.