Þá birtist hér loks næsti réttur. Ýmislegt hefur staðið í vegi fyrir því að ekki hefur náðst að setja þetta inn á síðuna okkar en nú tekst vonandi að setja inn á hana vikulega eða oftar. Hava er með fullt af hugmyndum og dætur hennar tvær eru jafn áhugasamar um matreiðsluna og eru alltaf með okkur í eldhúsinu. Þær hafa lært af mömmu sinni og verða án efa jafn miklir snilldarkokkar og hún. En gjörið svo vel og verði ykkur að góðu.
Rétturinn sem Hava býður okkur upp á heitir Ashak og kemur frá Afghanistan. Hann er ekki flókin í eldamennsku en þarfnast undirbúnings. Svona rétt eldar fjölskyldan oft um helgar þegar allir eru samankomnir og allir taka þátt í matargerðinni og úr þessu getur orðið hin besta skemmtun.
Ég á alveg örugglega eftir að plata fjölskyldu mína til að elda hann með mér. Ekki bara er þessi réttur ótrúlega bragðgóður heldur er líka gaman að dunda sér saman við undirbúninginn. Þessi réttur er ferðalag fyrir bragðlaukana og kemur skemmtilega á óvart. Hægt er að nota mismunandi hráefni í rauðu sósuna en hér notar Hava kartöflu. Líka er hægt að nota kjúkling eða hakk. Stundum er sósunni alveg sleppt og smjörklípa sett á heita púrrulaukshattana.

Innihald hveitideig
Laukur 1,5 bolli hveiti
hvítlaukur 1 bolli vatn
púrrulaukur salt
kartafla
tómatpaste
salt pipar
mynta
jógúrt
Laukur 1,5 bolli hveiti
hvítlaukur 1 bolli vatn
púrrulaukur salt
kartafla
tómatpaste
salt pipar
mynta
jógúrt
Byrja á að búa til deigið, fletja það út og skera til í ferhyrninga ca 5x5 cm. Geymum og snúum okkur að næsta skrefi.
Kartöflur skornar niður í smáa teninga og laukurinn skorinn smátt niður.
Allur púrrulaukurinn skorinn niður og Hava sker fyrst upp í hann og svo saxar hún hann niður smátt.
Út í púrrulaukinn setjum við smá olíu ca teskeið, svona rétt svo laukurinn haldist saman, þetta kryddað til með salt og pipar. Nú tökum við deigferningana og röðum þeim á bökunarpappír. Um það bil matskeið af lauknum sett í miðjuna á hverri sneið.
Brotið saman í tvennt og köntunum þrýst létt saman. Svo er bara að gera eins og sést á myndinni og reyna að ná sömu tækni og Hava notar. Hún setur deigið upp á vísifingurinn og beygir þetta saman.
Svona lítur þetta út og bíður eftir að verða soðið, þetta minnir mig á hatta og því kalla ég þá púrrulaukshatta. Næst snúum við okkur að sósugerðinni. Laukurinn steiktur upp úr olíu þar til hann er orðin mjúkur og gullinbrúnn.
Á meðann laukurinn brúnast er hvítlaukurinn raspaður og hrærður saman við jógúrtið.
það bragðbætt með salti og sett til hliðar. Kartöflurnar settar út í laukinn og látið steikjast í smá stund.
Tómatpúrran fer út í 1-2 matskeiðar eftir því hvað þú vilt hafa sósuna rauða.
1 -2 dsl vatn hellt út í og leyft að malla á lágum hita þar til kartöflur mjúkar.
Á meðan það gerist sjóðum við púrrulaukshattana. Setjum vatn í pott og látum suðuna koma upp, teskeið af salti sett út í og hattarnir ofaní.
Á meðan það gerist sjóðum við púrrulaukshattana. Setjum vatn í pott og látum suðuna koma upp, teskeið af salti sett út í og hattarnir ofaní.
Þetta er látið sjóða í stutta stund 2-3 mínútur. Jógúrt smurt á disk.
Hattarnir settir upp á diskinn. Jógúrt eftir smekk hvers og eins og myntu stráð stráð yfir. Að lokum kemur rauða sósan.