Í dag, 6 mars fórum við Hava saman á kvöldstund sem samtökin W.O.M.A.N. á íslandi standa fyrir. Á heimasíðu þeirra womeniniceland.is má finna þessa skilgreiningu:
"Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003. Hlutverk Samtakanna er að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum kvenna sem sest hafa að á Íslandi rödd. Markmið Samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins"
Samtökin standa fyrir skemmtilegum matarhitting einu sinni á mánuði. Þetta kvöld voru það konur frá Jamaíka sem kynntu okkur matargerð sína og voru allir réttirnir hver öðrum girnilegri. Við Hava nýttum svo tímann og kenndum hvor annari nokkur ný orð.
Gaman var að koma þarna og finna samkenndina og hve vel er tekið á móti nýjum konum.

Hér erum við nýju vinkonurnar á þessari góðu kvöldstund.