Á farsí þýðir orðið "man" ég og orðið "to" þýðir þú, þessir réttur heitir því Ég og Þú ! Ég spurði þær mæðgur hvort einhver sérstök meining væri á bak við nafngiftina, hvort þetta væri kannski eldað ef maður vildi ná athygli einhvers sérstaks eða væri ástfangin osfr. En svo er ekki, engin sérstök meining á bakvið heitið. Það er bara ég vesturlandabúinn sem er rómantíkerinn.
Innihald í fyllingu
Lambahakk 500 gr
2 laukar
5 hvítlauksrif
salt og pipar
Hveitideig
hveiti ca 1.5 bolli
vatn ca bolli eða þar til deig er passlega blautt/þurrt, ekki klístrað
salt ca 1/2 tsk
Sósa
laukur, tómatpaste og vatn
Lambahakk 500 gr
2 laukar
5 hvítlauksrif
salt og pipar
Hveitideig
hveiti ca 1.5 bolli
vatn ca bolli eða þar til deig er passlega blautt/þurrt, ekki klístrað
salt ca 1/2 tsk
Sósa
laukur, tómatpaste og vatn
Hér sjáum við hvernig Hava vinnur deigið og undirbýr fyrir fyllingu
Steikið saman hakkið og 1.5 stk lauk og kryddið með salti og vel af pipar. Takið pönnuna af hitanum og setjið út í 1/2 stk ferskan niðurskorinn lauk og 5 hvítlauksrif sem eru annaðhvort smáttskorin,kramin eða rifin niður á rifjárni eins og Hava gerir. Þá er fyllingin tilbúin og næst er það smá föndur. Setið deigbitana á bökunarpappír og fyllinguna í skál og pott til að raða fíneríinu ofan í. Við notum hér gufusoðspotta.
Ein matskeið af fyllingu sett á mitt deigið og brotið saman eins og á mynd, horn í horn og þrýst saman.
Þá lítur þetta svona út, eins og lítill pakki. Næsta skref er eins og á mynd, taka pakkann og klemma saman horn í horn.
Ég fékk að spreita mig á föndrinu og náði að búa til svona ...... fyllt fyrirbæri. Veit ekki hvað við eigum að kalla svona, bát kannski eða poka ? En allavega þegar ég stolt sýndi Hövu afrakstur minn fór hún að föndra blóm með matnum.
Þetta fannst mér verulega óréttlátt af henni að sýna yfirburði sína svo ég föndraði bara gogg en það gat hún líka, þá hætti ég og hélt áfram að fylla ferningana. Á ekki roð í hana.
Hér er þetta komið í pottinn á nokkrum hæðum og meðan það sýður ca 25 mínútur, skellum við okkur í rauðu sósuna. Fíntsaxaður laukur brúnaður í olíu þar til mjúkur, þá er tómatpaste sett út í og pipar ásamt skvettu af vatni og þetta látið malla. Þið ráðið litnum á sósunni með magningu af tómatpúrrunniþ Þetta er sama sósa og notað er með ASHAK, sem eru deig fyllt með púrrulauk og kartöflum.
Fat eða diskur tekin og smurður með hvítlauksjógúrt, dúddunum raðað ofaná og jógúrt skvett yfir.
Hér er búið að setja rauðu sósuna ofan á líka og strá myntu yfir. Gott er að setja ferskt kóriander yfir llíka en það var ekki til þennan dag hjá okkur. Ég snæddi þetta með því að skera hvern poka fyrir sig í tvennt og sá að dæturnar gerðu það líka. Hava aftur á móti sagði að maður ætti að borða hvern fyrir sig í einum munnbita, þá kæmi allt bragðið saman. Það sýndi að maturinn væri góður ef maður fyllti vel í munninn svo kinnarnar væru úttroðnar. Ég hélt hún væri að stríða mér en svo var ekki, þetta er siðurinn í Afganistan ! Mér fannst ekki leiðinlegt að prófa þetta og ég átti bágt með að koma matnum niður með troðfullan munninn,mér fannst þetta svo fyndið.
Þegar við vorum að borða spurði ég hvar flottu blómin hennar Hövu væru, mig langaði að sjá hvernig þau komu út en fann þau hvergi á disknum. Þá kom í ljós að þau voru sko ekkert handa mér, nei nei hún hafði tekið þau frá til að senda mig með þau heim til mannsins míns ! Þetta fannst henni fyndið. En svona leit flotti diskurinn út sem ég var send með heim. Og ekki nóg með það, þá fékk eiginmaðurinn brauð frá henni sem enn var volg, svo nýbakað var það. 10 stig til Hövu frá honum þennan dag.