Hava gerir heimsins besta jógúrt, einfalt og ótrúlega bragðgott. Það er mikið notað með mat hjá henni, stundum hreint, stundum með hvítlauk og yfirleitt alltaf saltað. Ég segi einfalt en samt hægt að klúðra því, ég þurfti tvær tilraunir heima til að ná því og nú á ég alltaf hreint jógúrt í ísskápnum nammmmm....
Innihald
1 líter nýmjólk
3 mtsk grísk jógúrt
1 líter nýmjólk
3 mtsk grísk jógúrt
Nýmjólkin sett pott og suða látin koma upp, hellt yfir í ílát sem hægt er að loka og kemst fyrir inn í ísskáp. Á myndinni hér fyrir ofan er búið að sjóða mjólkina og hella yfir í plastdall.
Þegar mjólkin er orðin ilvolg, hvorki heit né köld þá setjum við 3 mtsk af jógúrt út í og hrærum saman við með gaffli. Hava notar eigin jógúrt sem hún á alltaf inn í ísskáp en ég notaði gríska jógúrt. Lok sett á dallinn og hann hafður í stofuhita í 5-6 klukkustundir. Hava á svo fínan poka sem hún saumaði sjálf og passar flott til að halda hita á mat en ég er ekki svona myndarleg í saumaskapnum og vafði ísdallinum sem ég notaði inn í handklæði og hafði upp á eldhúsborði. Þetta er svo sett inn í ísskáp að loknum 5-6 klukkustundunum.
Hér sést stoltið mitt, mín eigin jógúrt svo silkimjúk og ljúffeng. Jógúrtið hjá Hövu er grófara en mér finnst
gott að hafa mjúka áferð og til þess að ná því þá er gríska jógúrtin hrærð saman við smá af volgri mjólkinni áður en hún er sett út í restina.
gott að hafa mjúka áferð og til þess að ná því þá er gríska jógúrtin hrærð saman við smá af volgri mjólkinni áður en hún er sett út í restina.