Þessi réttur er vinsæll bæði í Afghanistan og Íran. Hann er ekki flókin en krefst undirbúnings og smá handavinnu. Þetta er kjöt og grænmeti sem er steikt og vafið inn í annaðhvort hvítkálsblöð eins og þeir gera í Afghanistan eða blöð af vínberjatrjám eins og gert er í Íran. Þau er nú ekki algengt hráefni hér á norðurhjara veraldar en hægt er að kaupa þau loftþéttum umbúðum í erlendum verslunum hér í Reykjavík. Blöðin þarf að skola áður en notuð eru.
Innihald 250 gr lambahakk bolli hrísgrjón 1/2 bolli gular baunir (ekki maísbaunir) 1 laukur 1 hvítlauksrif steinselja hvítkál laufblöð af vínberjatré salt og pipar
Hrísgrjónin og gulu baunirnar eru settar í pott og soðið þar til mjúkt. Á meðan skerum við niður laukinn,
steinseljan skorin niður og hvítlaukur kramin eða raspaður á rifjárni. Hakk og laukur steikt saman á pönnu, kryddað til með salt og pipar
hvítkálshöfuð sett út í sjóðandi vatn og 1-2 mínútur. Fært yfir á disk og flett í sundur, magnið fer eftir hvað búa á til marga vafninga
Hér er búið að brúna hakkið og út í það fara soðin grjónin og baunirnar. Hrært saman og steinselju og hvítlauk bætt út í. Þetta er svo látið hitna saman í stutta stund.
Þá er það handavinnan, laufblaðið er tekið og slétt vel úr því og stöngullinn brotinn frá. Passlegt er að setja eina matskeið af blöndunni á mitt blaðið, svo er að brjóta það saman og raða ofan í pottinn.
Ég get sagt ykkur það að auðveldara er að nota hvítkálsblöðin og þetta getur verið töluvert dútl að ná þessu svona fallega eins og Hava gerði. Botninn á pottinum er svo hulinn vel með blöðum áður en raðað er ofan í hann.
Vatn sett í pottinn og suða látin koma upp. Við vorum í tímaþröng og því sauð hún vatn í katlinum og hellti yfir, annars á þetta að vera tilbúið þegar suðan kemur upp. Þetta er svo fært varlega upp á disk og snætt með jógúrtsósu með eða án hvítlauks. Dætur Hövu eru mjög hrifnar af þessum rétt og vilja vínberjablöðin frekar en hin en bragðlaukar mínir vilja vínberin frekar en blöðin. Hvítkálsbögglarnir fengu aftur á móti samþykki. Skora á alla að prófa þennan rétt
Er matarbloggið ekki á Facebook? Ég vil endilega fá að fylgjast með. Bestu kveðjur.
Reply
Leave a Reply.
Author
Heimasíða þessi er samvinnuverkefni tveggja kvenna sem hittust í gegnum Rauða krossinn. Hava sem er Afghanskur flóttamaður sem kemur frá Íran og er að læra á land okkar og þjóð og Linda sem er forvitinn mörbúi og langar að skyggnast inn í persneskan heim. Hava talar aðeins persnesku og því er ekkert annað í stöðunni en að reyna að læra það tungumál á meðan hún æfir sig í íslensku